Grasrót,margmiðlunar- og þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni.

Bátasmiðjan er hluti af iðngörðunum en forsagan er þessi:   Við í siglingaklúbbnum Nökkva höfum lengi verið á höttunum eftir húsnæði til afnota

Um bátasmiðjuna

Bátasmiðjan er hluti af iðngörðunum en forsagan er þessi:   Við í siglingaklúbbnum Nökkva höfum lengi verið á höttunum eftir húsnæði til afnota yfir vetrarmánuðina, bæði til viðgerða á eigin bátum eða á bátum klúbbsins.  Haustið 2008, eftir hrunið mikla stóð mikið af allskonar húsnæði ónotað víða um bæinn og eftir svolittla leit var okkur boðið húsnæði í Strýtu, áður rækjuverksmiðju Samherja.

Strax eftir áramótin 2008-9 byrjuðu  fyrstu námskeiðin í kayakkgerð og kano undir stjórn þeirra Haraldar Inga og Jónasar Sigurjóns en um 40 karlmenn frá 12 ára til 70 ára komu á fyrstu kynningu okkar.  Samhliða þessu verkefni komu upp hugmyndir um að útvíkka bátasmiðjuna í einskonar iðngarða en vegna mjög ósangjarna krafna eigenda um leigu á frekara húsnæði í Strýtu var okkur öllum vísað á dyr.  Mjög fljótlega gátum við komist að samkomulagi við Loftorku um húsnæði í gamla slippnum og flutti bátasmiðjan þangað í lok febrúar og eftir hressilega tiltekt og hreinsum fór starfsemin af stað.  Starfsmaður var ráðinn í mars til að sjá um viðgerðir á bátum klúbbsins og talsverður fjöldi manna vann að bátum sínum í bátasmiðjunni. 

Fjölsmiðjan á Akureyri lagði okkur til 2 starfsmenn til viðbótar um tíma í sumar og voru smíðaðar 3 flotbryggjur í samstarfi við Akureyrarhöfn ( 2 fyrir Nökkva) ásamt viðgerðum á 17 optimistum í eigu Nökkva.  Frábært framtak sem bæði skilaði miklum afrakstri og verkefnum fyrir atvinnulaust fólk sem annars hefði setið heima með hendur í skauti og ekki síst fyrir siglingaklúbbinn að fá alla bátana viðgerða og tvær nýjar flotbryggjur.

1. Nóvember sl hófst starfsemi bátasmiðjunar aftur, nú hafa 2 menn verið ráðnir og mun annar vera í bátasmiðjunni í slippnum en hinn verður einhverja mánuði í bátasmiðju Seiglu við viðgerðir á tjónuðum hraðfiskibát sem Tryggingamiðstöðin gaf siglingaklúbbnum í fyrra.  Áfram verður unnið að viðgerðum á eldri seglbátum klúbbsins, BB11 og Pirat sem lengi hafa staðið ónotaðir en munu í framtíðinni verða glæsilegir ef allt gengur upp.  Fyrirhuguð eru námskeið í bátasmíði, kayakk og kanó en einnig eru hugmyndir um stærri báta og vonandi leggur einhver í byggingu á nýjum súðbyrtum báti.

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf