Grasrót,margmiðlunar- og þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni.

Hver erum við? Miðstöð fyrir skapandi og virka þátttöku með nær ótæmandi möguleika.  Fyrir einstaklinga á öllum aldri sem vilja taka þátt í skemmtilegum

Um Grasrót

Hver erum við?
Miðstöð fyrir skapandi og virka þátttöku með nær ótæmandi möguleika.  Fyrir einstaklinga á öllum aldri sem vilja taka þátt í skemmtilegum og uppbyggjandi verkefnum. Víða um heim hefur það sýnt sig að verkefni  sem þessi með jákvæða ímynd og hvatningu að leiðarljósi, eru vel til þess fallin að vera í fararbroddi í vistvænni hönnun og nýsköpun.   Ekki síst nýsköpun sem snýr að endurnýtingu og gjörnýtingu afurða og úrgangs. Hvatt er til samstarfs starfandi aðila á svæðinu og frumkvöðla Iðngarðanna.

Í stjórn Grasrótar sitja:
Sóley Björk Stefánsdóttir formaður stjórnar soleybs@gmail.com, s:8441555
Guðmundur Örn Ólafsson s: 8680505
Sigurbjörg Árnadóttir s:6951266

Margrét Ingibjörg Lindquist, varamaður
Guðmundur Ármann Sigurjónsson, varamaður

Markmið
Markmið Grasrótar er að útbúa sameiginlega aðstöðu fyrir fjölbreytta starfsemi á sviði iðnaðar, þjónustu og menningar.  Einnig er stefnt að því að skipuleggja viðburði og sýningahald og skapa Iðngörðum þá umgjörð sem hvetur til nýsköpunar.  Það styrkir samvinnu milli greina og greiðan aðgang fyrir gesti.

Aðstaðan
Við erum að Hjalteyragötu 20.  Það er gamalt iðnaðarhúsnæði  sem býður upp á þá hráu og óþvinguðu umgjörð sem þarf til þess að móta skapandi og síbreytilegt umhverfi fyrir starfsemi sem þessa.  Það er þegar kominn vísir að trésmíðaaðstöðu og fyrirhuguð er uppsetning á saumaaðstöðu, vélarými, tölvuveri og málningaraðstöðu. Einnig eru til staðar vinnustofur þar sem frumkvöðlar geta unnið að sýnum verkefnum í meira næði.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf