Grasrót,margmiðlunar- og þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni.

Stuðningur við ungt fólk í Iðngörðum Verkefnið UNGT FÓLK TIL ATHAFNA fór af stað um áramótin í þeim tilgang að mæta þörf þess stóra hóps ungra manna til

Stuðningur við ungt fólk í Iðngörðum

Jóhannes Ásbjarnarson styður við bakið á verkefninu  UNGT FÓLK TIL ATHAFNA
Jóhannes Ásbjarnarson styður við bakið á verkefninu UNGT FÓLK TIL ATHAFNA
Verkefnið UNGT FÓLK TIL ATHAFNA fór af stað um áramótin í þeim tilgang að mæta þörf þess stóra hóps ungra manna til þátttöku í samfélaginu.
Í samstarfi við Vinnumálastofnun, Akureyrabæ og ýmis félög og fyrirtæki hefur Grasrót- Iðngarðar tekið þátt í efla ungt fólk með fjölbreytilegri starfsþjálfun og hvatningu til virkrar atvinnuleitar.


Í Iðngörðum að Hjalteyragötu 20 og víðar eru starfræktar öflugar smiðjur fyrir ungt fólk.
Kajaksmiðjan hefur sem dæmi vakið mikla athygli víða um land.
Iðngarðar hafa auglýst eftir vélum og verkfærum og nýlega birtist Jóhannes Ásbjarnarson með öndvegis hefil sem hann ætlar að lána Iðgörðum á meðan verkefnið UNGT FÓLK TIL ATHAFNA er við líði.
Grasrót – Iðngarðar þakkar Jóhannesi fyrir þann stuðning sem hann er að sýna í verki


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf