miðvikudagur 23.mars 2011 - Rúnar Þór - Lestrar 13
Góður hópur ungra manna úr Iðngörðunum fór á dögunum í heimsókn í Slippinn til að kynna sér framleiðslu
á DNG færavindunum. Mikil ánægja var með þetta fyrirkomulag og er hugmyndin að fara í fleiri fyrirtæki næstu vikurnar.
Það var vel tekið á móti mönnum og margir voru hissa hvað þetta er gríðarlega vönduð og fullkomin framleiðsla. Bestu þakkir fyrir móttökunar DNG menn.








