fimmtudagur 13.maí 2010 - Kristinn - Lestrar 18

Verkefnisstjóri í trésmiðju Birkir Björnsson kennir Sóley Smáradóttur handbrögðin
Frá stofnun félagsins hefur verið öflug starfsemi í Iðngörðum. Bátasmiðja Nökkva hóf starfsemi sína fyrri hluta árs 2009.
Tveir starfsmenn hafa unnið í bátasmiðjunni undanfarna mánuði og hafa jafnframt annast kennslu í kajaksmíði í verkefninu Ungt fólk til athafna.
Fjöldi einstaklinga, atvinnulausir sem vinnandi hafa nýtt sér aðstöðuna í Iðngörðum til að vinna að margskonar handverki. Um þessar mundir er bátasmíði umfangsmesta starfsemi Iðngarða og væntanlega fara á þriðja tug báta á flot í sumar.
Í kjölfar lagasetningar við árslok 2009 var verkefnið Ungt fólk til athafna sett af stað á vegum Félags- og
tryggingamálaráðuneytisins. Það er Vinnumálastofnun sem sér um framkvæmd þess. Markmið verkefnisins er að koma ungum atvinnuleitendum
í samfélagslega virkni í gegnum vinnu eða nám.
Grasrót - Iðngarðar hófu þegar samstarf við Vinnumálastofnun og hafa boðið ungu fólki upp á margvísleg tækifæri
til starfa og náms við handverk.
Í Iðngörðum er trésmiðja og er þar starfrækt kajak- og hljóðfærasmiðja og tréútskurður en einnig er þar
starfrækt raftækjasmiðja og málmsmiðja.
Auk þessa hafa Grasrót – Iðngarðar og nýsköpun tekið að sér umsjón og utanumhald með fleiri verkefnum og má þar
nefna margmiðlunarsmiðju sem staðsett er í Rósenborg og heimilissmiðju nútímans sem að mestu leyti fer fram í húsnæði í
eigu útgerðafyrirtækisins Brims.
Í Iðngörðum eru starfandi klúbbar fólks á öllum aldri sem kemur saman og smíðar og meðal annars hljóðfæri,
flugdreka, báta, fuglahús og húsgögn. Þá hefur félagið skotið skjólshúsi yfir starfsemi Huglistar sem er félagsskapur ungs
fólks með geðraskanir.
Nýlega hóf hópur lista- og handverksmanna samstarf í Iðngörðum við hönnun og framleiðslu minjagripa. Hópurinn hefur nú
þegar tryggt sölu á fyrstu afurðunum sem frá honum kemur.
Einnig starfar ungt fólk við textílhönnun og saumaskap í Iðngörðum, en markmið þar er að þróa fyrirtæki og taka
þátt í lífinu sem atvinnurekendur fyrr en síðar.
Þá hafa verið opnir dagar í Iðngörðum nokkra laugadaga í vetur þar sem gestum og gangandi hefur verið boðið upp á að
vinna að handverki undir leiðsögn fagmanna.
Grasrót – Iðngarðar og nýsköpun tóku þátt í saumakompu sem starfrækt var í Zontasalnum Aðalstræti 54 A
ásamt Minjasafninu á Akureyri og Punktinum í Rósenborg. Þar fengu allir Akureyringar, háir sem lágir tækifæri til þess
að koma saman og sauma eða breyta fötum fyrir Öskudaginn.
Á sama tíma var trésmíðaverkstæðið í Iðngörðum á Hjalteyragötu 20 opið fyrir þá sem þurftu
að smíða í tilefni Öskudagsins. Fagfólk var þátttakendum til aðstoðar.
Grasrót – Iðngarðar og nýsköpun efndi til ráðstefnu um atvinnumál “ Akureyri – orksamfélag norðurlands “
í samstarfi við Akureyrastofu og Vinnumálstofnun. Ráðstefna var haldin í Ketilhúsinu á Akureyri 12. maí 2010







