Mikið er um að vera í Iðngörðunum en rúmlega 20 eru skráðir í virkni þessa dagana. Mjög fjölbreytt verkefni eru í gangi á hverjum degi og reynt að hver og einn finni sér verkefni við hæfi. Td í dag var kynning á hnífagerð undir leiðsöggn Guðmundar Arnar en hann er einn að þessum sem kann margt skemmtilegt og óhræddur að lofa öðrum að njóta þess.

Flettið áfram fyrir fleiri myndir og texta.


Glæsilegir hnífar.

Það verður að vanda til verka.

Buggibíll hefur verið í smíðum sl 3 mánuði og er nú að verða klár, hér eru Gunni og Sigurjón ánægðir með árangurinn.

Í morgun var svo farið í alvöru prufutúr á græjunni.

Örn með barnakayak sem hannaður er í bátasmiðjunni, það verður spennandi að fylgjast með hvernig þessi reynist.

Ef einhver á skilið hrós fyrir dugnað er það Óli, alveg magnaður í að gera upp og pússa eldri hluti.

Í plastsmiðjunni eru Stefán og Bubbi á fullu, plastið býður upp á fullt af möguleikum hvað varðar notkun og lítil takmörk fyrir hvað hægt er að gera af hlutum þegar menn eru útsjónasamir.








