Grasrót,margmiðlunar- og þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni.

LÁTTU DRAUMINN RÆTAST Opið hús 23. Janúar Grasrót – Iðngarðar og nýsköpun er miðstöð fyrir einstaklinga á öllum aldri sem vilja taka þátt í

LÁTTU DRAUMINN RÆTAST

Guðmann Jóhannsson smíðar líkan af gömlum bát sem hann réri á hér á árum áður
Guðmann Jóhannsson smíðar líkan af gömlum bát sem hann réri á hér á árum áður

Opið hús 23. Janúar

Grasrót Iðngarðar og nýsköpun er miðstöð fyrir einstaklinga á öllum aldri sem vilja taka þátt í skemmtilegum og uppbyggilegum verkefnum.

Langar þig að læra að smíða alvöru fuglahús eða umhverfisvæn leikföngundir leiðsögn fagfólks og taka þátt í þróunarstarfi eða jafnvel skapa þér atvinnu?

Grasrót- Iðngarðar býður alla velkomna að líta inn á verkstæði félagsins að Hjalteyragötu 20 á Akureyri, laugardaginn 23. janúar milli kl 11:00 og 16:00

Efniskostnaður er aðeins 1000 kr.

Einnig verða kynnt verkefni sem fara fljótlega af stað: Gítar- og bátasmíðar

Svalandi drykkir í boði og heitt á könnuninni.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf