Grasrót,margmiðlunar- og þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni.

Grasrótin tekur þátt í verkefninu UNGT FÓLK TIL ATHAFNA Síðastliðinn mánudag hófst á Akureyri atvinnuátak fyrir atvinnulaust fólk á aldrinum 18-24 ára.

Grasrótin tekur þátt í verkefninu UNGT FÓLK TIL ATHAFNA

Grasrót kynnir fyrir ungafólkinu verkefnin
Grasrót kynnir fyrir ungafólkinu verkefnin

Síðastliðinn mánudag hófst á Akureyri atvinnuátak fyrir atvinnulaust fólk á aldrinum 18-24 ára. Átakið er kallað Ungt fólk til athafna og er ætlunin að ýta því úr vör um allt land.  Á Akureyri eru tæplega 200 ungmenni á aldrinum 18-24 ára án atvinnu.Grasrót - Iðngarðar á Akureyri, er einn þeirra aðila sem koma að þessu átaki.

Haldnir hafa verið fundir á vegum vinnumálastofnunar með unga fólkinu í samstarfi við fjölmörg félög m.a. Grasrót, Menntasmiðjuna, Akureyrarstofu, Rauða krossinn, Símey, Fjölsmiðjuna og Verkmenntaskólann á Akureyri. Frá Grasrót kynntu þau Sóley Björk Stefánsdóttir, Guðný Anna Ríkharðsdóttir og Kristinn H. Þorsteinsson nokkur verkefni sem eru að hefjast og má þar nefna kajasmíðar, margmiðlunarsmiðju, heimilissmiðju, umhverfisverkefni og fiðlu og gítarsmíðar.

Um þrjátíu ungmenni hafa skráð sig í verkefni hjá Grasrót og má búast við að það verði talsverð fjölgun á næstunni.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf