Grasrót,margmiðlunar- og þróunarmiðstöð fyrir atvinnusköpun og menningartengd verkefni.

Grasrótin á málþingi Byggjum betra samfélag Miðvikudaginn 26. maí frá kl. 13.30 til 17.30 verður haldið málþing í Rósenborg undir yfirskriftinni "Byggjum

Grasrótin á málþingi

Byggjum betra samfélag

Miðvikudaginn 26. maí frá kl. 13.30 til 17.30 verður haldið málþing í Rósenborg undir yfirskriftinni "Byggjum betra samfélag - Valdefling í verki". Málþingið er haldið á vegum Akureyrarbæjar, félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Háskólans á Akureyri, Hlutverkaseturs og Rauða kross Íslands. Fundarstjóri er Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi.

Geðheilsa er víðtækt hugtak og hún skiptir sköpum í samfélagi manna. Málþingið á erindi við alla, fagfólk, sveitarstjórnarmenn, fólk úr atvinnulífinu, skólafólk og almenning. Hugum vel að hvert öðru og hvetjum alla til að mæta. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur.      

Sjá dagskrá á http://www.visitakureyri.is/IS/naest-a-dagskra/allt



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf